<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d8130701\x26blogName\x3d...No+Power+in+the+Verse+can+stop+me...\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLACK\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://skolabull.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://skolabull.blogspot.com/\x26vt\x3d-965859614412168442', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

...No Power in the Verse can stop me...

miðvikudagur, janúar 04, 2006

...

posted by annabjörg @ 5:33 e.h.  
Uh... Hvað gerir maður við svona „frí?” Þ.e.a.s. ég er ekki að vinna nema hluta dags þrjá daga í viku í einni vinnu, hin vinnan er í smááááá biðstöðu og skólinn byrjar ekki fyrr en eftir tvær vikur (það eina góða sem kemur út úr fjársvelti félagsvísindadeildar) og ég veit eiginlega ekki hvað ég á af mér að gera.
Jú, ég er að hugsa um að fá geðveikiskast og þrífa á morgun (taka netta jólahreingerningu, ‘tis the season...) en hvað svo? Jú, liggja uppi í sófa og horfa á dvd... Það hljóta reyndar að vera takmörk fyrir því hvað hægt er að gera mikið af því, kannski það verði missjonið mitt í „fríinu” að komast að því hvar þessi mörk liggja!
Eða kannski ætti ég að vera ógeðslega skynsöm og klár og byrja að lesa tölfræði (sem ásækir mig í martröðum mínum) svo að ég nái henni kannski í þetta skiptið.
Eða undirbúa afmælisfögnuðinn sem verður ekki næstu helgi heldur þarnæstu (taktu hana frá ef þú vilt koma með á besta djamm það sem af er árinu!).
Eða þjálfa Snúð til að fara út í búð fyrir mig (geta svona lítil kvikindi ekki borið eina jógúrtdollu eða svo?!)...

Æj við sjáum bara til, þetta á eftir að fljúga hjá, áður en maður veit af verða komin jól aftur...


Powered by Blogger And Falconer Designs.