...Nýtt hljóð í strokknum!...
Akureyringar eru æði!! Ég fann Akureyring sem reddaði mér áramótaskaupinu ’85 á tölvutæku formi! Ég byrjaði að horfa á það og ég hló svo mikið að ég ákvað að ég gæti ekki horft á það ein, er ekki stemning fyrir ’85 partíi þegar ég kem heim?! Sem verður á sunnudaginn btw, ég geri ráð fyrir að koma skelþunn heim á sunnudagseftirmiðdag. Ég var nefnilega að fá dagskrána fyrir árshátíðina í hendurnar og mér sýnist bara vera 48 tíma djamm framundan! Og af því að maður er nú fastur hérna í þessu skrítna menningarsamfélagi þá er framboð skemmtunar af skrítnum skammti, við förum á Upplyftingu annað kvöld (á stað sem heitir Vélsmiðjan, ég man ýmislegt þaðan síðan síðast) og á laugardagskvöldið (eftir júró) er víst búið að redda okkur inn í Sjallann þar sem Í ******* fötum (get ekki skrifað... you know!) verður að spila. Inn á milli eru svo óvissuferðir, hlaðborð, drykkja og þú veist... bara það sem manni dettur í hug. Og svona til að hita aðeins upp og í tilefni fimmtudags og svona þá fékk ég mér hvítvín í staðinn fyrir mitt venjulega piparmyntute hérna á Kaffi Akureyri. Það eina sem mér finnst í rauninni vont við að sitja hérna er að ég er farin að söngla með óþægilega mörgum lögum á útvarpsstöð djöfulsins (þið vitið hverja ég á við ;).
Eníhús, sé ekki fram á að vera í miklu tölvusambandi þangað til ég kem heim, verið þið bara góð hvert við annað og kjósið Finnland í Júró, annað er bara bull!!!
Love ya’s, miss ya’s, really wanna kiss ya’s! (kannski ég hefði ekki átt að panta annað hvítvínsglas!)
Eníhús, sé ekki fram á að vera í miklu tölvusambandi þangað til ég kem heim, verið þið bara góð hvert við annað og kjósið Finnland í Júró, annað er bara bull!!!
Love ya’s, miss ya’s, really wanna kiss ya’s! (kannski ég hefði ekki átt að panta annað hvítvínsglas!)