miðvikudagur, júlí 30, 2008
mánudagur, júlí 21, 2008
...ekki svo athyglisvert...
(það er kannski best að taka það fram áður en fleiri hætta við sushi að þetta er ekki eins ógeðslegt og það hljómar, þetta er meira einhver keimur í loftinu sem situr bara í nefinu þegar maður kemur heim og blandast við sápu/sótthreinsilyktina af höndunum, það er aðallega hún sem þarf að þvo af...)
föstudagur, júlí 18, 2008
...athyglisvert...
Annars er ég búin að eyða nóttinni í allskonar vitleysu (glöggir lesendur (haha djók, ég veit að það er bara ein lesönd hérna :P) taka kannski eftir því að ég er loksins búin að laga letrið í linkunum hér til hægri), m.a. að fara yfir Facebook apps og eyða út nokkrum sem ég nenni ekki að hafa og kíkja á fullt af dóti sem ég var búin að gleyma, alltaf gott að taka til í kringum sig. Mér fannst samt frekar fyndið þegar ég smellti á 'remove' við einn hlekkinn og það poppaði upp hjá mér: Are you sure you want to remove your sex appeal?
Já veistu, fyrst enginn virðist taka eftir honum hvort sem er þá er bara eins gott að henda honum!
laugardagur, júlí 12, 2008
Þessa dagana er ég að lesa bók sem heitir Áður en ég dey eftir Jenny Downham. Hún á margt sameiginlegt með bókinni Veróníka ákveður að deyja eftir Paulo Coelho; báðar sögurnar eru sagðar frá sjónarhóli ungra kvenna sem vita að dauðinn er á næsta leyti. Það sem er ólíkt er hins vegar stíllinn, frásögnin og útfærsla hugmyndarinnar. Coelho gerir Veróníku að leiðindapersónu; þegar ég var komin inn í miðja bók og virkilega farin að vona að hún myndi kannski bara drepast á næstu blaðsíðu þá hætti ég að lesa og hef ekki opnað hana síðan. Áður en ég dey greip mig hins vegar strax, hún er mun hlýrri, auðveldara að fá samúð með aðalpersónunni og mann langar til að upplifa þessar síðustu stundir með henni.
Ég hugsa að ég mæli með henni, þótt ég sé ekki einu sinni búin með hana...
sunnudagur, júlí 06, 2008
...Hún bloggar!...
Pottþétt leið til að yngja sig upp: að fljúga á hausinn af reiðhjóli og fá fleiður í lófana, hné og olnboga. Á örskotsstundu líður manni eins og maður sé 10 ára! Mér líður allavega þannig núna, er með plástra á öllum helstu liðamótum og marbletti á lærinu. Og svo komst ég að því að svona fyrir utan það að fljúga á hausinn í fyrstu hjólaferðinni í nokkur ár þá hef ég ekkert hjól-þol og á sennilega eftir að deyja þegar ég reyni að hjóla í vinnuna (reyndar er ekkert mál að hjóla í hana, vandamálið byrjar á leiðinni uppeftir aftur :P).
Svo er ég líka alveg með það á hreinu að það eru engar konur sem vinna við það að hanna reiðhjól því ef þær gerðu það þá væri fyrir löngu búið að finna upp hnakk sem virkar fyrir rass sem er stærri en meðalstærð! Já, ég fór sumsé út að hjóla í dag og ekki nóg með það, ég fór í sund líka. Dugleg stelpan, segirðu ef til vill en þetta er ekki allt. Þegar ég kom heim og var búin að gleyma því að ég var næstum búin að æla í miðjum Elliðaárdalnum af áreynslu og andlitið á mér hætt að vera bleikt á litinn, þá datt mér í hug að fara á línuskauta. Eða sko... hugmyndinni um línuskauta var plantað í hausinn á mér og það var ekki aftur snúið. Ég druslaðist í Laugardalinn og tók lítinn hring þar í afskaplega góðum og skemmtilegum félagsskap, stórvel heppnuð fyrsta ferð sumars (já, það er kominn júlí og ég hef ekkert skautað, hneykslanlegt).
Og af því að það var komið svo mikið sumar í hjartað ákvað ég að nenna ekki heim svo ég brunaði niður á Ósushi og borðaði nokkra bita og átti einstaklega skemmtilegt samtal í öðrum afskaplega góðum og skemmtilegum félagsskap. Mmmmmm sushi...
Þessi dagur fær alveg 10 í einkunn, kannski ekkert erfitt miðað við vinnuálag og frítímaleysi undanfarið en hann var allavega frábær! Verst að karma gæti dottið í hug að hafa tvöfaldan mánudag á morgun í staðinn...